Hundar og kettir eru skráningarskyldir frá 3 mánaða aldri, en auk þess þarf að skrá dýr innan mánaðar eftir að það kemur á nýtt heimili. Þá þarf að tilkynna afskráningu innan mánaðar ef hundur eða köttur skiptir um heimili eða deyr. Greitt er fyrir leyfi til hunda- og kattahalds skv. gjaldskrá, en árlegt leyfisgjald er sent út í greiðsluseðli, Innifalið í leyfisgjaldinu er ormahreinsun og trygging gagnvart þriðja aðila.
Boðun um ormahreinsun er send út árlega. Skylt að mæta með dýrin í hana, en hreinsun hunda og katta fer fram að haust. Sveitarfélagið sér um handsömun hunda í lausagöngu og villikatta. Einnig er tekið við kvörtunum vegna hunda og katta. Ábendingar og kvartanir eru metnar í hverju tilfelli fyrir sig og er lögð áhersla á að bregðast við í samræmi við það.