18. maí 2012

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps: Fundargerð 18. 05. 2012
25. fundur 2010-2014
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Djúpavogshrepps föstud. 18. maí 2012 kl. 16:00. Fundarstaður: Geysir.
Mættir voru: Andrés Skúlason, Þórdís Sigurðardóttir, Albert Jensson, Irene Meslo og Sóley Dögg Birgisdóttir. Einnig sat fundinn Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri. Andrés stjórnaði fundi.
Dagskrá:
1. Ársreikningur Djúpavogshrepps 2011, síðari umræða. .
Helstu niðurstöður ársreiknings 2011 eru, í þús. króna:
A hluti
Tekjur 354.282
Rekstargjöld 279.747
Afskriftir 15.148
Fjármagnsgjöld 38.555
Rekstrarniðurstaða jákvæð 20.832
A og B hluti
Tekjur 398.958
Rekstargjöld 299.570
Afskriftir 23.909
Fjármagnsgjöld 44.588
Tekjuskattur 259
Rekstrarniðurstaða 31.150
Efnahagur A hluta 31.12.2011
Heildareignir 545.458
Eigið fé 81.136
Skuldir 464.322
Efnahagur A og B hluta 31.12.2011
Heildareignir 677.548
Eigið fé 158.343
Skuldir 519.206
Sveitarstjórn vill undir þessum lið fagna þeim árangri sem náðst hefur í fjármálum sveitarfélagsins við annars erfitt rekstrarumhverfi og að því tilefni vill sveitarstjórn þakka sveitarstjóra sérstaklega hlut hans í þeim árangri sem náðst hefur. Sveitarstjórn er sömuleiðis meðvituð um að áfram þarf að gæta aðhalds í rekstri, jafnhliða því sem hugað verði að frekari sölu eigna.
Eftir umfjöllun var ársreikningurinn borin upp, staðfestur og undirritaður af sveitarstjórn.
2. Samþykkt um B-gatnagerðargjöld, síðari umræða
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að fá staðfestingu ráðherra og fá birtingu í Stjórnartíðindum.
Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 16:30.
Fundargerðin, sem færð var í tölvu, lesin upp, staðfest, prentuð út og síðan undirrituð.