Djúpivogur
A A

Rúllandi snjóbolti

Rúllandi snjóbolti, Djúpivogur

Rúllandi snjóbolti er samtímalistasýning sem haldin er á sumrin í Bræðslunni á Djúpavogi. Sýningin er samstarfsverkefni Djúpavogshrepps og CEAC (Chinese European Art Center) í Xiamen, Kína, en CEAC er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var árið 1999 af Ineke Guðmundsson með fjárhagslegum stuðningi eiginmanns hennar, Sigurðar Guðmundssonar listamanns.

Eitt af markmiðum CEAC er að stuðla að menningarlegum samskiptum milli Kína og Vesturlanda. Stofnunin hefur í gegnum árin kynnt bandaríska, kanadíska, ástralska og íslenska listamenn í Kína. Þessi kínversk-evrópska menningarmiðstöð er löngu orðin þekkt í kínverska og evrópska listaheiminum og hefur staðið fyrir mörgum, stórum sýningum í Kína.

Rúllandi snjóbolti/5, Djúpivogur, sem haldið var sumarið 2014, var fyrsta sýningin sem CEAC skipuleggur utan Kína.

Verkefnið Rúllandi snjóbolti er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða listasýninguna sjálfa (Rúllandi snjóbolta) sem sett er upp í hvítum teningi, byggðum inni í fyrrverandi bræðsluhúsnæði Djúpavogs. Hins vegar dvelja listamenn á vegum CEAC á Djúpavogi að sumarlagi og starfa að listsköpun sinni.

Rúllandi snjóbolti/6 hlaut menningarverðlaun SSA 2015 og var tilnefndur til Eyrarrósarinnar 2016, 2017 og 2018.

Um Rúllandi snjóbolti/5, Djúpivogur

Um Rúllandi snjóbolti/6, Djúpivogur

Um Rúllandi snjóbolti/7, Djúpivogur

Um Rúllandi snjóbolti/9, Djúpivogur

Um Rúllandi snjóbolti/11, Djúpivogur

Um Rúllandi snjóbolti/12, Djúpivogur

Um Rúllandi snjóbolti/ 13, Djúpivogur


Fésbókarsíða Rúllandi snjóbolta

Frá Rúllandi snjóbolti/5, Djúpivogur

Var efnið hjálplegt?