Hrekkjalómur á ferð í Borgarlandinu

Hrekkjalómur á ferð í Borgarlandinu skrifaði - 22.06.2009
20:06
Í morgun þegar íbúi nokkur í Borgarlandi ætlaði að setjast inn í bílinn sinn sá hann sér til mikillar undrunar að það var búið að pakka bílnum inn í filmuumbúðir. Eftir harðvítuga baráttu við plastið, með skærum og hnífabrögðum komst eigandinn inn í bílinn, þá orðin allt of seinn til vinnu.
Nú spyrja íbúar í Borgarlandinu sig hvaða hrekkjalómur hefur verið á ferð síðastliðna nótt með plastfilmu þessa og sömuleiðis spyrja menn sig hvort hann muni láta til skarar skríða aftur í nótt.