Rauðhöfðaendur, fjöruspóar o.fl.

Rauðhöfðaendur, fjöruspóar o.fl. skrifaði - 01.03.2012
11:03
Undanfarin ár hefur töluverður hópur af öndum haft vetursetu í Álftafirði og fer fjölgandi ár frá ári. Nú eru hér um 60 rauðhöfðaendur yfir veturinn. Einnig eru hér nokkrir fjöruspóar sem halda sig mikið í Grjótgarðsskerinu og í fjörunum þar við.
Á bryggjunni er mjög ljós máfur, sem ekki hefur tekist að tegundagreina og væri gaman ef einhverjir gætu fundið út hvaða máfur það er og látið vita. AJ