Maríerla fóðrar unga sína

Maríerla fóðrar unga sína skrifaði - 04.07.2012
07:07
Við bæinn Hvarf á Djúpavogi hefur maríerla gert sér hreiður inn á milli steina sem stillt hefur verið upp í hillu við íbúðarhúsið. Hér má sjá hvar maríuerlan er að fóðra unga sína svo og má sjá skemmtilegar myndir af erlunni þar sem hún situr á útskornum lunda sem er að finna þarna í húsagarðinum. AS