Lómur, toppönd, skúfönd,duggönd, hávellur, heiðagæsir, helsingjar og svartur svanur

Lómur, toppönd, skúfönd,duggönd, hávellur, heiðagæsir, helsingjar og svartur svanur skrifaði - 08.04.2009
19:04
Í dag meldaði hinn fuglaglöggi Sigurjón Stefánsson svartan svan í Álftafirði svo og stóra hópa af helsingja, grágæs og heiðagæs á túnum í Álftafirði svo og á Berunesi í Berufirði. Þá mátti sjá óvenju stóra hópa af toppönd á Breiðavogi á Búlandsnesi, þá mátti einnig sjá skúfendur, duggendur og hávellur á Fýluvogi. Lómapar var sömuleiðis mætt á Nýjalón við hlið flugvallarins. Það er því ljóst að vorið er sannarlega komið og má segja með sanni að fuglarnir streymi inn á landið þessa dagana. AS
Lómur
Helsingjar
Grágæsir í oddaflugi
Heiðagæsir
Toppandarsteggur
Hávella - karlfugl
Skúfendur
Duggendur
Svartur svanur í Álftafirði