Haftyrðlar

Haftyrðlar skrifaði - 29.02.2012
06:02
Haftyrðlar eru ageng sjón í Berufirði þessa dagana en þeir skipta hundruðum Haftyrðlarnir sem svamla um fjörðinn. Þegar þetta er ritað eru Haftyrðlarnir algengasta svartfuglategundin á Berufirði. Haftyrðillinn, sem er minnstur svartfugla og einn minnsti sjófuglinn, er árviss gestur hér við land á veturna en hann verpir norðan við okkur, t.d. á Grænlandi og Jan Mayen. KI