Farfuglarnir farnir að láta sjá sig

Farfuglarnir farnir að láta sjá sig skrifaði - 29.03.2012
22:03
Farfuglarnir eru farnir að láta sjá sig og í morgun mátti sjá brandandarpar á Nýjalóni, lómapar og rauðhöfðapar á Breiðavogi svo og flórgoða. Grágæsirnar hafa svo verið að streyma inn síðustu daga hér inn á svæðið. Má segja að fuglarnir séu almennt snemma á ferðinni í ár enda hafa hlýindi verið óvenjumikil að undanförnu. AS