Fuglavefur
Listaverkið í Gleðivík
Verk Sigurðar Guðmundssonar listamanns var sem kunnugt er vígt með formlegum hætti við Gleðivík síðastliðinn föstudag. Að því tilefni er ekki úr vegi að birta hér nokkrar myndir frá undirbúningi, vígsludeginum svo og af listaverkinu sjálfu lesendum síðunnar til yndisauka.
Fyrir hönd sveitarfélagsins vill undirritaður nota tækifærið hér og þakka listamanninum sérstaklega skemmtilega og gefandi tíma meðan hann dvaldi í Himnaríkinu sínu hér á Djúpavogi. AS.
Eggin komu í þessum trékössum alla leið frá starfstöð listamannsins í Kína
Egill vandar sig við að koma fyrsta egginu á stöpulinn sinn
Bryndís Reynisdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi með Sigurði listamanni við fyrsta eggið (lundaeggið)
Það tóku margar röskar hendur þátt í uppsetningunni og gekk verkið vonum framar
Hér er stóra lómseggið á leiðinni á stallinn, starfsmenn áhaldahússins vanda til verka
Og svo var eggið stóra híft á síðasta stöpulinn
Sigurður Guðmundsson og kona hans Ineke stilla sér stolt upp við lómseggið
Á vígsludaginn, Andrés Skúlason oddviti og listamaðurinn Sigurður Guðmundsson afhjúpa verkið
Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri heiðrar hjónin á vígsludegi
Og færir þeim tvær myndir að gjöf
Listamaðurinn flytur ávarp í tilefni dagsins
Svo er spjallað um listina milli atriða
Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri og Hlíf Herbjörnsdóttir taka sig vel út við egg skógarþrastarins
Svo gengu menn með 200 m löngu listaverkinu og skoðuðu hvert egg fyrir sig
Ingimar Sveinsson og listamaðurinn á góðu spjalli
Svo var grillað á eftir
Meira grill
Andrés Skúlason oddviti ásamt listamanninum við egg óðinshanans
Ineke og Sigurður bregða á leik við egg steindepilsins
Listamaðurinn og steindepilseggið
Horft yfir höfnina og listaverkið ofan af lýsistanknum
Eggin ólík að lit og formi
Egg skógarþrastarins
Lómseggið í forgrunni
Eggin skarta sínu fegursta við Gleðivíkina
Strandafjöllin eru flott í bakgrunni eggjanna
Sigurður og Ineke alsæl að vígsludegi loknum úti á svölum í Himnaríki ( nafn á heimili listamansins)
Hér fyrir neðan má sjá kynningarbækling um eggin í Gleðivík, unninn af ferða- og menningarmálafulltrúa Djúpavogshrepps og sveitarstjóra Djúpavogshrepps.
Súluungi í vandræðum
Í gær þegar ljósmyndari birds.is var á gangi á sandi í fjörum austan við Þvottárskriður gekk hann fram á súlu unga sem átti í umtalsverðum vandræðum. Um gogg ungans var sem sagt vafinn eldrauður spotti, marga vafninga og í enda hans var lítill plastpoki.
Greiðlega gekk að ná unganum þrátt fyrir að hann reyndi að höggva aðeins frá sér, en þegar fuglinum var náð og byrjað var að losa um bandið varð hann mjög rólegur og beið þess bara rólegur að losna við bandið enda hefur það vafalaust verið búið að trufla hann við veiðarnar. Líklegt má þykja að fuglinn hafi haldið að rauði spottinn væri æti og stungið goggnum í hann og fest hann með þessum afleiðingum. Þó skal ekki útilokað að bandinu hafi verið komið fyrir af mannavöldum því það var vafið mjög reglulega og fast utan um gogginn, en við skulum þó vona að menn séu ekki að gera slíkt að leik sínum.
Fuglinn var svo frelsinu fegin eftir að spottinn hafði verið losaður og mun eflaust ná sér að fullu. AS