Djúpavogshreppur auglýsir eftir tilboðum í verkið: Grunnskóli Djúpavogs - viðbygging

Djúpavogshreppur auglýsir eftir tilboðum í verkið: Grunnskóli Djúpavogs - viðbygging skrifaði Ólafur Björnsson - 13.05.2019
15:05
Djúpavogshreppur auglýsir eftir tilboðum í verkið: Grunnskóli Djúpavogs - viðbygging
Verkið felst í jarðvinnu, fráveitulögnum, uppsteypu þakfrágangi og frágangi utanhúss á 174m2 viðbyggingu við Grunnskóla Djúpvogs, Vörðu 6, Djúpavogi.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 15. maí 2019. Senda skal beiðni um útboðsgögn á netfangið runarm@djupivogur.is með upplýsingum um bjóðanda.
Helstu magntölur: | |||||||||||||||||
Gröftur | 155 | m3 | |||||||||||||||
Klapparlosun | 65 | m3 | |||||||||||||||
Fyllingar | 120 | m3 | |||||||||||||||
Fráveitulagnir | 115 | m | |||||||||||||||
Mótauppsláttur | 320 | m2 | |||||||||||||||
Steypustyrktarstál | 2700 | kg | |||||||||||||||
Steypa | 55 | m3 | |||||||||||||||
Þakvirki | 180 | m2 | |||||||||||||||
Utanhússfrágangur | 105 | m2 |
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Djúpavogshrepps, Bakka 1, Djúpavogi föstudaginn 31. maí 2019 fyrir kl. 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
F.h. verkkaupa,
Mannvit