Uppræting lúpínu í þéttbýlinu

Uppræting lúpínu í þéttbýlinu skrifaði - 16.07.2012
12:07
Hér með eru allir íbúar sem vettlingi geta valdir hvattir til að taka þátt í að uppræta lúpínu hér í þéttbýlinu og á nærsvæði á næstu dögum og vikum. Samhliða er stefnt að því að sveitarfélagið vinni að því á næstunni að uppræta lúpínuna þar sem hún hefur breitt mest úr sér.
Um þessar mundir er einmitt talið rétti tíminn til að herja á þennan skaðvald sem ógnar m.a. tilveru íslensku flórunnar á stórum svæðum. Íbúum er hér með gefnar frjálsar hendur með að slá þetta illgresi niður, hvort heldur með sláttuorfum eða öðrum brúklegum verkfærum. Að þessu tilefni er því beint til íbúa í viðkomandi hverfum að einbeita sér fyrst og síðast að þeim svæðum.