Umgengni á almenningsklósettum

Umgengni á almenningsklósettum skrifaði Greta Mjöll Samúelsdóttir - 26.11.2020
09:11
Undanfarið hefur verið mjög slæm umgengni á almenningsklósettunum í Faktorshúsinu.
Sprautað er sápu yfir alla veggi, pappír tættur og útum öll gólf. Troðið hefur verið matvælum í yfirfallsgötin á vöskunum og mulin matvæli í peningakassann. Gengið er ofan á öllu sem hægt er að ganga á og sporað út.
Svona sóðaskapur og skemmdarfýsn er til háborinnar skammar og bið ég foreldra að ræða alvarlega við börnin sín um umgengni og framkomu hluta í eigu sveitarfélagsins.
Sigurbjörn Heiðdal
Forstöðumaður Þjónustmiðstöðvar Djúpavogi