Þór Vigfússon opnar einkasýningu


Opnun einkasýningar í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi:
Þór Vigfússon
Opnun 12. febrúar, kl. 18:00-20:00, Skaftfell sýningarsalur.
Listamannaspjall 13. febrúar, kl. 14.00 (á íslensku).
Sýningin stendur til 11. apríl 2021. Opið daglega frá kl. 16:00-21:00.
Innangengt um Bistróið á fyrstu hæð.
Sýningaropnun og listamannaspjall eru hluti af listahátíðinni List í ljósi.
Við biðjum alla gesti um að virða reglur vegna Covid-19 þar sem hámarksfjöldi í rými er 20 manns
og að bera grímur.
Segja má að myndlistamaðurinn Þór Vigfússon (f. 1954) sverji sig í ætt við naumhyggjulistamenn
þar sem verk hans einkennast af einföldum formum og hreinum litaflötum. Efnisval Þórs er nær
eingöngu iðnaðarefni á borð við plexigler, mdf, litað gler og ál, en verk hans eru á mörkum þess
að vera málverk og veggskúlptúrar þar sem misstórir fletirnir og áferð efnisins talar sig inn í rýmið.
Litagleðin í verkum Þórs spilar einnig stórt hlutverk en er samt sem áður fáguð og jarðbundin.
Verkin eru ákveðin og afdráttarlaus og einfaldleiki þeirra ber með sér merki um aga og nákvæmni,
en við nánari eftirgrennslan er það ekki síður tilfinning, innsæi og gáskafull eftirvænting
listamannsins eftir samspili forma, efnis og lita sem ræður för. Það er einmitt á þeim nótum sem
samtalið við rýmið og áhorfandann á sér stað og þar hefst ferðalagið þegar rýnt er í verkin.
Verk Þórs hafa undarlega dáleiðandi áhrif hvort sem það er vegna litaðra tvívíðra fleta sem virka á
stundum eins og þeir svífi í lausu lofti eða þegar horft er í lagskipt, lituð gler sem endurspegla
bæði áhorfandann og rýmið. Glerverkin gera það að verkum að maður upplifir eins og þau séu
innlit inn í annan heim. Milli formanna og litanna á sér stað samspil sem ljós og skuggar hafa
einnig áhrif á og með hækkandi sól mun þetta samspil skapa breytilegar viðtökur eftir því hvernig
birtan magnast. Útgangspunktur verkanna eru form og litir, sem eru í raun grunnundirstaða
myndlistar, og verk Þórs eru ekki ætluð að færa okkur konkret merkingu heldur skapa þau fyrst og
fremst upplifun á formi og rými. Sú upplifun getur hins vegar búið til innra samtal hjá áhorfendum
og verkin verða þá nokkurs konar staksteinar til að stikla á og tengja upplifun okkar bæði út á við
en ekki síður inn á við. Einfaldleikinn og samspil efnis, lita og rýmis er til þess fallið að skapa kyrrð
og ró á tímum óreiðu sem hefur einkennt litla samfélagið okkar á Seyðisfirði undanfarið og færir
okkur ljúflega inn í birtuna sem er framundan og vorið.
Þór Vigfússon er fæddur í Reykjavík árið 1954 og nam myndlist við MHÍ og síðar í Hollandi í
Strichting De Vrije Academie í Den Haag. Hann hefur sýnt víða bæði hérlendis og erlendis t.d.
Kjarvalsstöðum, Nýlistasafninu, i8 galleríi, Quint Gallery í San Diego og The Chinese European
Art Center, Xiamen City í Kína. Þór býr og starfar í Reykjavík og Djúpavogi.
Sýningarstjórar: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Julia Martin
Ljósmyndir: Vigfús Birgisson, i8 gallerí
Nánari upplýsingar:
skaftfell@skaftfell.is (Hanna Christel)
https://skaftfell.is/thor-vigfusson/