Sumarvinna 2011 - Íþróttamiðstöð Djúpavogs

Sumarvinna 2011 - Íþróttamiðstöð Djúpavogs
skrifaði 23.02.2011 - 13:02Laus eru til umsóknar störf vegna sumarafleysinga við Sundlaug Djúpavogs fyrir sumarið 2011.
Starfið fellst í meginatriðum í gæslu / eftirliti við sundlaug og í baðklefum - vinna í afgreiðslu, við þrif og eftir atvikum öðrum tilheyrandi verkum er falla til í ÍÞMD.
Nýjir starfsmenn skulu sækja sérstakt grunnnámskeið ætlað starfsfólki sundstaða sem verður
haldið 6 - 7 júní næstk. á Egilsstöðum.
Ráðningatímabil: 15. júní – 15. ágúst.
Umsóknarfrestur er til 10 apríl.
Óheimilt er að ráða starfsmenn yngri en 18 ára.
Allar fyrirspurnir vegna umsókna skulu berast á netfangið andres@djupivogur.is
Ferilskrá skal fylgja umsóknum.
Andrés Skúlason
Forstöðum. ÍÞMD