Styrkir til atvinnumála kvenna

Styrkir til atvinnumála kvenna
skrifaði 20.01.2010 - 13:01Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert.
Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar. Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar.
Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt.
Sjá frekari upplýsingar með því að smella hér
BR