Steinunn Björg með flotta sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur

Steinunn Björg með flotta sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur
skrifaði 28.11.2013 - 10:11Steinunn Björg Helgadóttir sem íbúar á Djúpavogi þekkja betur undir nafninu, Björg í Sólhól, hefur vakið verðskuldaða athygli að undanförnu með listvefnað sinn á sýningu sem staðið hefur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Viðtökur voru vonum framar að sögn Bjargar og seldist vel. Hér meðfylgjandi má sjá myndir af hinum glæsilega vefnaði í bás sem Björg var með á sýningunni. Í hverju verki liggur gríðarlega mikil vinna og er virkilega gaman að sjá hve Björg hefur afkastað miklu á þessu sviði. Við óskum Björgu að sjálfsögðu til hamingju með þessa glæsilegu frammistöðu.