Ryðönd

Ryðönd
skrifaði 09.06.2014 - 13:06Síðustu tvo daga hefur mjög sjaldgæfur flækingur haldið sig hér við leirurnar við Djúpavogsflugvöll, en þar er á ferð svokölluð ryðönd sem er skyld brandönd, enda hefur ryðöndin haldið sig annað veifið þarna á svæðinu í nálægð við brandendur sem þar eru. Sjón er sögu ríkari og hér fylgja með nokkrar myndir. Teknar í morgun. AS