Rúllandi snjóbolti 5 fær frábærar viðtökur

Rúllandi snjóbolti 5 fær frábærar viðtökur
skrifaði 15.07.2014 - 16:07Síðast liðinn laugardag var sýningin Rúllandi snjóbolti 5 opnuð í bræðslunni á Djúpavogi. Áður en sýningin var opnuð formlega var boðið upp á harmonikkuspil og síðan voru flutt ávörp og samhliða var boðið upp á fjölbreyttar veitingar úr héraði, allt í anda Cittaslow og á höndum heimamanna sem skal hér þakkað sérstaklega fyrir sína aðkomu.
Af öðrum ólöstuðum er sérstök ástæða til að þakka þeim Þór Vigfússyni og Ölfu Freysdóttir fyrir frábært framlag sitt við allan undirbúning og umgjörð þessa stórkostlega listviðburðar hér á Djúpavogi.
Síðast en ekki síst er vert að þakka þeim Sigurði Guðmundssyni og Ineke fyrir sýndan hlýhug til Djúpavogs og mikinn metnað við að koma þessum stórkostlega listviðburði og samstarfsverkefni á laggirnar og þá ber að þakka sömuleiðis öllum öðrum frábærum listamönnunum sem lögðu til listaverk á sýninguna til upplifunar fyrir heimamenn og gesti sem eiga eftir að njóta á næstu vikum.
Um 270 manns heimamenn og gestir víða að mættu á þennan stóra listviðburð sem forseti Íslands opnaði formlega ásamt May Lee forstjóra CEAC. Óhætt er að segja að viðtökur hafi í alla staði verið framar öllum vonum en frá opnunardegi hafa um 100 manns á dag skoðað sýninguna sem er kærkomin viðbót við listaverkið Eggin í Gleðivík sem stendur við hlið bræðslunnar. Sjá að öðru leyti fyrri umfjöllun: http://www.djupivogur.is/adalvefur/?id=38349
Sýningin verður opin 11:00 - 16:00 alla daga vikunnar til 15 ágúst.
Hér eru nokkrar myndir frá opnunarhátíð Rúllandi snjóbolti 5 á Djúpavogi sem að við vonum að verði árlegur viðburður.
AS
Sýningarhúsið - bræðslan á Djúpavogi
Ólafur Eggertsson á Berunesi spilaði á harmonikku við opnunina
Auður Gautadóttir - Ásdís Hauksdóttir og Rán Freysdóttir báru fram veitingar
Duglegar að venju - Kvenfélagið Vaka
Auður Gautadóttir ber fram góðgæti gert af Kvenfélaginu Vöku á Djúpavogi
Þór Vigfússon listamaður og May Lee forstjóra CEAC
Alfa Freysdóttir verkefnisstjóri og May Lee
Annelie Musters deildarstjóri CEAC í Amsterdam leggur lokahönd á merkingar
Ævar Orri Eðvaldsson Hótel Framtíð galdrar fram krækling
Svavar P Eysteinsson og Berglind H frá Karlsstöðum buðu upp á dýrindis Bulsur og fl.
http://www.bulsur.is/um-bulsur/
Margt um manninn við opnun
Gauti Jóhannesson sveitarstjóri flutti ávarp
May Lee forstjóri CEAC
Forseti lýðveldisins Ólafur Ragnar Grímsson flutti ávarp
May Lee - Ineke Guðmundsson - Dorrit Moussaieff - Ólafur R Grímsson - ásamt listakonunum
Scarlett Hooft Graafland og Marjan Laaper sem dvalið hafa á Djúpavogi síðustu vikur.
Listamaðurinn Sigurður Guðmundsson - Dorrit Moussaieff - Ólafur R Grímsson - May Lee
og Ineke Guðmundsson stofnandi Chinese European Art Center
Magnús Árni Skúlason og Goddur
Ólafur forseti og May Lee opna sýninguna
Gjörningur Sigurðar Guðmundssonar "Fullt hús" vakti mikla athygli
Um 270 manns mættu við opnun sýningarinnar
Kristján Guðmundsson listamaður og Signý Ormarsdóttir fulltrúi Menningarmála á
Austurlandi.
Goddur
Scarlett Hooft Graafland og Kristján Guðmundsson
Þorbjörg Sandholt með sýningarskrána klára
Sigurður Guðmundsson
Guðmundur Helgi Stefánsson virðir eitt listaverkana fyrir sér - sýningarrýmið glæsilega í bakgrunni.
Stór videolistaverk í bræðslunni f.v. eftir Ragnar Kjartansson og Marjan Laaper