Ormahreinsun hunda- og katta á Djúpavogi

Ormahreinsun hunda- og katta á Djúpavogi skrifaði Greta Mjöll Samúelsdóttir - 26.11.2020
13:11
Hákon Hansson dýralæknir verður í áhaldahúsinu á Djúpavogi til að gefa hundum og köttum inn ormalyf, þriðjudaginn 1. desember kl. 12:30 til 13:30.
Mikilvægt er að öllum hundum og köttum sé gefið inn til að tryggja að vöðvasullur breiðist ekki út á Austurlandi.
Ef einhver hefur ekki tök á að mæta má viðkomandi hafa samband við Hákon.