Menningarverðlaun SSA

Menningarverðlaun SSA skrifaði Greta Mjöll Samúelsdóttir - 25.09.2020
14:09
Samband sveitarfélaga á Austurlandi óskar eftir tilnefningum til Menningarverðlauna SSA.
Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða félagasamtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði menningar á undanförnum árum/áratugum eða einstaks menningarafreks sem er öðrum fyrirmynd.
Verðlaunin eru í formi verlaunafjár að upphæð 250.000 kr. og heiðursskjals sem afhent er á haustþingi SSA.
Tilnefningu skal fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling, stofnun eða félagasamtök þar sem tilnefningin er rökstudd. Tilnefningar án rökstuðnings eru ekki teknar gildar. Allir hafa rétt á að senda inn tilnefningar. Sjá nánar á heimasíðunni www.ssa.is
Skilafrestur tilnefninga er til 28. september 2020 um netfangið asdis@austurbru.is