Lestun á baggaplasti 2018


Lestun á baggaplasti 2018
Greta Mjöll Samúelsdóttir skrifaði 26.06.2018 - 15:06Ágætu bændur í Djúpavogshreppi
Nú stendur fyrir dyrum að fara á sveitabæi í Djúpavogshreppi og taka baggaplast til endurvinnslu. Það verður gert þriðjudaginn 3. júlí. Ef ekki næst að taka allt baggaplastið í einni ferð verður önnur ferð skipulögð hið fyrsta og bændur þá upplýstir um það. Bændur eru hér með vinsamlegast beðnir um að tryggja öruggt aðgengi að rúlluplastinu svo lestun gangi vandræðalaust fyrir sig.
Þeir bændur sem ætla að nýta sér þessa ferð eru vinsamlegast beðnir um að láta vita á skrifstofu Djúpavogshrepps í síma 470-8700 eigi síðar en mánudaginn 2.júlí. Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri.
Með góðum samstarfskveðjum
Djúpavogshreppur – Sjónarás.