Jólatónleikar tónskólans

Jólatónleikar tónskólans
skrifaði 14.12.2011 - 12:12Jólatónleikar tónskólans voru haldnir í Djúpavogskirkju í gær. Að vanda voru tónleikarnir mjög vel heppnaðir og margir snillingar stigu á stokk. Sérstaklega er gaman að fylgjast með þeim sem eru að byrja tónlistarnámið sitt og síðan þeim sem eldri eru að spila saman í "litlum hljómsveitum." Flest lögin voru jólalög en nokkrir "rokkslagarar" í rólegri kantinum fengu að fylgja með. Dagskráin endaði á því að samsöngskórinn flutti tvö lög.
Við þökkum Andreu og József kærlega fyrir frábæra tónleika. Meðfylgjandi myndir tók Lilja Dögg. HDH