Hátíðardagskrá Umf. Neista og Slysavarnarfélagsins Báru, 20. júní

Hátíðardagskrá Umf. Neista og Slysavarnarfélagsins Báru, 20. júní skrifaði - 19.06.2009
20:06
Umf.Neisti og Slysavarnarfélagið Bára standa fyrir síðbúinni skemmtun vegna 17. júní, laugardaginn 20. júní og er dagskráin eftirfarandi:
10:00 – 11:00 Dorgveiðikeppni fyrir 14 ára og yngri. Mæta með sín eigin veiðifæri niður á bryggju. 10 ára og yngri í fylgd með fullorðnum
11:00 – 12:00 Bátsferðir frá flotbryggjunni
12:00 – 13:00 Grillað verður við Neistahúsið (gamla leikskólann), Slysavarnarfélagið Bára selur pylsur og svala. Blöðrur seldar á staðnum.
16:00 Dagskrá hefst á Neistavelli
- Leikir
- Pokahlaup
- Fótbolti
- Reiptog og fleira
- Kassabílarall börn skrái sig á staðnum.
Nammi er selt niður á Neistavelli.
Hvetjum alla til að mæta og eiga góðan dag
Umf. Neisti og Slysavarnarfélagið Bára