Gestavika

Gestavika
skrifaði 18.03.2010 - 10:03Gestavikan í skólanum stendur nú sem hæst. Góð þátttaka hefur verið hjá forráðamönnum, sérstaklega yngri barnanna. Börnin hafa fengið heimsóknir í smíðatíma, heimilisfræði, tjáningu, inni í stofu, samsöng o.m.fl.
Hann Brynjar Dagur, sem sést hér á myndinni, hefur verið duglegur að heimsækja systkini sín og skemmti sér hið besta í samsöngnum í morgun, þar sem hann bæði dansaði og söng. Enn eru tæpir tveir skóladagar eftir þannig að enn er svigrúm til að heimsækja börnin. HDH