Frá Löngubúð

Frá Löngubúð skrifaði - 19.06.2009
16:06
Laugardaginn 20.júní fögnum við 420 árum við voginn. Langabúð hefur spilað stórt hlutverk í sögu Djúpavogs í gegnum árin og að því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag og vonumst til að sem flestir taki þátt í því með okkur.
*Frítt á byggðasafnið á Löngubúðarloftinu allan daginn.
*Vöfflur og kakó/kaffi á afmælistilboði
*Ásamt því að myndbandsupptökur og svipmyndir frá 400 ára afmælishátíðinni 1989 verða sýndar á skjá.
Um kvöldið mætir svo Kristján Ingimars með gítarinn og spilar og syngur fyrir okkur fram eftir kvöldi. Húsið opnar kl 21:00 og kostar 500 kr inn.
Djúpavogsbúar, til hamingju með daginn!