Flugeldasalan í fullum gangi

Flugeldasalan í fullum gangi
skrifaði 31.12.2009 - 13:12Í húsi SVD Báru er flugeldasalan í fullum gangi. Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér flugelda fyrir kvöldið en sölu verður hætt kl. 14:00. Undirritaður leit við í slysavarnahúsinu í morgun.
ÓB
Spenntir flugeldakaupendur
Þó þeir séu í felum á þessari mynd er Kiddi sölumaður fram í fingurgóma
Billi og Bjössi
Elva og Kristborg voru ekkert sérlega ánægðar með myndatökumanninn
En til allrar guðs lukku er alltaf hægt að finna einhverja sem vilja ólmir láta taka af sér myndir. Bjössi Heiðdal er einn þeirra.