Djúpavogshreppur auglýsir

Djúpavogshreppur auglýsir
Greta Mjöll Samúelsdóttir skrifaði 27.06.2018 - 08:06Leikskólakennari - Leiðbeinandi
Leikskólinn Bjarkatún, Djúpavogi auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinenda í 50% starf frá 15. ágúst 2018, vinnutími 12-16. Einnig vantar faglærða leikskólakennara. Auglýst er eftir 50% starfi sem er með möguleika á auknu starfshlutfalli síðar meir.
Áhugasömum er bent á að kynna sér starfskjör en einnig er vert að skoða heimasíðu leikskólans bjarkatun.leikskolinn.is
Upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðrúnu leikskólastjóra í síma 470-8720 eða í tölvupósti, bjarkatun@djupivogur.is
Umsóknum ber að skila fyrir 15. júlí 2018 í tölvupósti bjarkatun@djupivogur.is eða til leikskólastjóra Hammersminni 15B. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Leikskólinn Bjarkatún
Guðrún S Sigurðardóttir
Leikskólastjóri