Dagar myrkurs á Djúpavogi

Dagar myrkurs á Djúpavogi
skrifaði 22.10.2010 - 10:10Dagar myrkurs verða haldnir dagana 4. - 14. nóvember um allt Austurland. Hér með er óskað eftir hugmyndum að viðburðum fyrir Daga myrkurs á Djúpavogi þannig að hægt sé að gera þessa daga sem skemmtilegasta fyrir alla.
Einnig eru fyrirtæki og félagasamtök á staðnum hvött til þess að taka þátt.
Hugmyndir að viðburðum óskast sendar á netfangið bryndis@djupivogur.is. Fyrirtæki og félagasamtök sem hafa nú þegar skipulagt viðburði í tengslum við Daga myrkurs og vilja vera með í sameiginlegri auglýsingu skulu einnig senda tölvupóst á sama netfang.
Ferða - og menningarfulltrúi Djúpavogshrepps
BR