Búið að opna veginn milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur

Búið að opna veginn milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur
skrifaði 11.11.2016 - 20:11Búið er að opna veginn milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur en aurskriða féll á veginn austan við Núp á Berufjarðarströnd í kvöld.
Hér að neðan er frétt af sem birtist eftir að skriðan féll mbl.is
ÓB
20 metra breið aurskriða féll yfir þjóðveg 1 í Berufirði á Austfjörðum á áttunda tímanum í kvöld. Vörubíll lenti í skriðunni en ekki er talið að ökumaður hans hafi slasast alvarlega. Vegurinn er lokaður í báðar áttir. Skriðan féll norðan megin í Berufirði milli bæjanna Núps og Streitis.
Björgvin Gunnarsson, bóndi á Núpi, mokaði í gegnum skriðuna á dráttarvél sinni svo sjúkrabíll kæmist að sækja ökumanninn. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð björgunarsveitarinnar Einingar á Breiðdalsvík fann ökumaður fyrir eymslum í baki og var fluttur undir læknishendur. Sjónarvottur segir að flutningabíllinn sé nokkuð skemmdur, grillið brotið og drullan hafi náð upp á rúðu.
Reynir Gunnarsson, rekstarstjóri Vegargerðarinnar á Höfn, segir að hjólaskófla sem hafi verið í botni Berufjarðar sé á leiðinni og til standi að opna veginn sem fyrst. Nokkrir bílar bíði eftir að komast í gegn. Mjög hafi dregið úr úrkomu. Hann segir að tekist hafi að bakka vörubílnum úr skriðunni og telur hann að bílinn hafi keyrt inn í skriðuna.
Tilkynning lögreglu er svohljóðandi:
„Kl. 19.17 barst tilkynning til neyðarlínu að ca. 20 metra braut aurskriða hafi fallið yfir þjóðveg 1 í Berufirði á austfjörðum og er vegurinn þar lokaður í báðar áttir. Þá hafi vörubifreið lent í skriðunni. Sjúkrabíll, lögregla og björgunarsveitir hafa þegar verið kölluð út.
Búist er við að vegurinn verði lokaðir í nokkurn tíma. Lögreglan í Fjarðarbyggð fer með málið en þess er óskað að fjölmiðlar hringi ekki í þá sem stendur því þeir eru uppteknir.
Fjarskiptamiðstöð lögreglu veitir ekki frekari upplýsingar um málið, annað en að senda út aðra tilkynningu verði þess þörf.“