Breytt fyrirkomulag á tendrun jólatrésins í ár

Breytt fyrirkomulag á tendrun jólatrésins í ár skrifaði Greta Mjöll Samúelsdóttir - 24.11.2020
11:11
Ljósin á jólatré Djúpavogs verða að venju tendruð fyrsta sunnudag í aðventu þann 29. nóvember kl. 17:00, á Bjargstúni. Grunnskólanemi kveikir jólaljósin.
Jólatréð er gjöf frá Skógræktarfélagi Djúpavogs.
Vegna gildandi takmarkanna á samkomum sem miðar við 10 manna fjöldatakmörkun er ekki hægt að halda viðburðinn með hefðbundnum hætti. Tendruninni verður fyrir vikið streymt á www.djupivogur.is ogfésbókarsíðu Djúpivogur.is kl.17:00 á sunnudag.
Alfreð Finnsson stýrir, segir okkur sögu af jólatrénu og Kristján Ingimarsson spilar jólatónlist.