Bæjarvinna 2019 – upplýsingar til barna og foreldra

Bæjarvinna 2019 – upplýsingar til barna og foreldra skrifaði Greta Mjöll Samúelsdóttir - 24.05.2019
11:05
Bæjarvinna 2019 – upplýsingar til barna og foreldra
Starfstímabilið er frá 11. júní – 9. ágúst 2019.
Vinnutíminn er 8 klst. á dag, frá 08:00 – 17:00. Athugið að matartími telst ekki vinnutími.
Vinnutími barna í árgangi 2007 er 08:00 – 12:00.
Tímakaup með orlofi, 10,17%:
- Árgangur 2002: kr. 1.615,00
- Árgangur 2003: kr. 1.536,00
- Árgangur 2004: kr. 1.063,00
- Árgangur 2005: kr. 965,00
- Árgangur 2006: kr. 866,00
- Árgangur 2007: kr. 669,00
Orlof er greitt út með launum.
Launaseðlar verða sendir heim í pósti.
Laun verða greidd inn á launareikning í banka
- Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar (ath. kortanúmer eru ekki bankareikningsnúmer) og upplýsingum sé komið til forstöðumanns áhaldahúss eða launafulltrúa í tæka tíð fyrir útborgun. Berist upplýsingar ekki fyrir útborgun bíður launagreiðsla til næstu útborgunar.
Persónuafsláttur
- Unglingar sem verða 16 ára á árinu þurfa að skila inn upplýsingum um ráðstöfun persónuafsláttar til launafulltrúa svo ekki verði dregin staðgreiðsla af launum.
- Rétt er að benda á mikilvægi þess að þeim upplýsingum skilað tímanlega, þ.e. í síðasta lagi 4 dögum fyrir útborgun svo ekki komi til frádráttar vegna staðgreiðslu.
Lífeyrissjóður
- Lífeyrissjóður 4% er dreginn af launum um næstu mánaðarmót eftir að 16 ára aldri er náð. Greitt er í Stapa lífeyrissjóð, mótframlag 11,5%.
Veikindaréttur
- Veikindaréttur er skv. kjarasamningum Afls, grein 12.2.2 um tímavinnufólk.
- Veikindadaga á launum og tímana fyrir þá þarf að skrá.
Útborgun launa er fyrsti virki dagur mánaðar
- Laun fyrir júní verða greidd 1. júlí
- Laun fyrir júlí verða greidd 1. ágúst
- Laun fyrir ágúst verða greidd 2. september
Launafulltrúi