Áfram Hrafna Hanna Elísa !

Áfram Hrafna Hanna Elísa !
skrifaði 24.04.2009 - 10:04Nú eru aðeins fimm keppendur eftir í Idol-Stjörnuleit en keppnin verður sífellt harðari með hverri vikunni. Í kvöld verður þema með lögum sem Björgvin Halldórsson hefur gert vinsæl og ætlar Hrafna að syngja lagið "Hvað vita þeir".
Nú er það skylda okkar Djúpavogsbúa, brottfluttra sem íbúa á staðnum, að taka höndum saman og kjósa Hröfnu áfram og tryggja henni þannig sæti í næsta þætti. Framkoma hennar og flutningur hefur hingað til verið alveg frábær og við viljum að sjálfsögðu sjá þessa efnilegu tónlistarkonu komast áfram í keppninni.
Eins og fram kom á Hammondhátíðinni í gærkvöldi er búið að setja upp styrktarkassa á Hótel Framtíð þar sem hægt er að gefa framlög til styrktar Hröfnu. Kassinn verður aðgengilegur á komandi viðburðum Hammondhátíðar og hvetjum við alla til að láta eitthvað af hendi rakna til Hröfnu, þar sem þátttaka í keppni sem þessari er sannarlega ekki ókeypis.
Kosningarnúmer Hröfnu í kvöld er 900 9002
Áfram Hrafna Hanna Elísa !!!
BR
Styrktarkassinn góði