Aðalvefur
BRAS haldin í þriðja sinn
menningarviðburðir í boði um allt Austurland

Auglýst eftir skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa í nýju sveitarfél...
Sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í nýju sveitarfélagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.
Íslenska fyrir útlendinga
Icelandic courses / Jezyk islandzki dla obcokrajowców
Uppbyggingarsjóður Austurlands auglýsir eftir umsóknum
Lokað verður fyrir umsóknir kl. 23:00 þann 15. október.
Opinn framboðsfundur í nýju sveitarfélagi
Austurfrétt/Austurglugginn í samstarfi við sveitarfélagið Fljótsdalshérað, standa fyrir opnum framboðsfundi með fulltrúum framboða til sveitarstjórnar nýs sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Auglýsing frá yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga
Auglýsing frá yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga og kosninga til heimastjórna í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar, sem fram fara þann 19. september 2020.
Þú getur kosið utankjörfundar!
Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar
FRAMKVÆMDASJÓÐUR FERÐAMANNASTAÐA AUGLÝSIR EFTIR STYRKUMSÓKNUM
Umsóknarfrestur til 6. október
Sveitarstjórn: Fundarboð 10.09.2020
25. fundur 2018 - 2022
Kjörskrár og kjörstaðir vegna sveitarstjórnarkosninga og kosninga til ...
Auglýsing um kjörskrár og kjörstaði vegna sveitarstjórnarkosninga og kosninga til heimastjórna í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar, sem fram fara þann 19. September 2020.
Kjörskrár vegna ofangreindra sveitarstjórnar- og heimastjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 19. september 2020, munu liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofum hvers þeirra sveitarfélaga sem mynda hið nýja sveitarfélag á opnunartíma hverrar skrifstofu, ekki síðar en miðvikudaginn 9. september 2020 til og með föstudeginum 18. september 2020. Kjörskránnier skipt upp á hvert hinna eldri sveitarfélaga, þannig og kjósendur eru skráðir á kjörskrá þar sem þeir áttu skráð lögheimili þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. þann 29. ágúst sl.
Pokastöðin opnar aftur á mánudagskvöld
7. september kl. 20 í Tryggvabúð

Rannsókn á áhrifum samgönguúrbóta
Austurbrú kannar viðhorf Austfirðinga til samgönguúrbóta og hversdagslegra þátta sem tengjast samgöngum.
Góð svörun er mikilvæg og við viljum biðja ykkur um að svara, deila og dreifa sem víðast á Austurlandi.
Könnunin er styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og unnin af Austurbrú.
Hér er linkur á könnunina: https://www.surveymonkey.com/r/samgongur
Grenndarkynning - Bakki 4, umbúðamóttaka
Á fundi sveitarstjórnar Djúpavogshrepps 14. ágúst 2020 var ákveðið að láta fara fram grenndarkynningu sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á eftirfarandi tillögum:
Bakki 4 – umbúðamóttaka matshl. 13
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar með því að smella hér.
Vetraropnunartími móttökustöðvarinnar á Háaurum
Vetraropnun hefur nú tekið gildi í móttökustöðinni á Háaurum.
Opnun í vetur er sem hér segir:
Þriðjudagar: 13:30 - 16:30
Fimmtudagar: 13:30 - 16:30
Laugardagar: 13:30 - 15:30
Forstöðumaður áhaldahúss
Glænýr Matvælasjóður
Opið fyrir umsóknir!
Bóndavarða - haustútgáfa
Auglýst eftir efni og auglýsingum fyrir 1. október

Dagar myrkurs 2020
Dagar myrkurs verða 28. okt. - 1. nóv.

Framboð til sveitarstjórnar og sveitarstjórnarkosninga
Auglýsing um framboð til sveitarstjórnar og sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar.
Yfirkjörstjórn við sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar hefur móttekið og staðfest sem gilda framboðslista fimm eftirtalinna framboða fyrir sveitarstjórnarkosningar, sem fram munu fara þann 19. september 2020.
Framboðslistarnir með nöfnum þeirra frambjóðenda sem í kjöri verða eru eftirfarandi, raðað skv. listabókstöfum framboðanna.
Íþróttamiðstöðin lokuð þriðjudaginn 1. september
Það verður lokað hjá okkur í íþróttamiðstöðinni þriðjudaginn 1.sept. Við ætlum að þrífa og sótthreinsa húsið vel fyrir komandi vetur. Svo opnum við hress og kát kl 07:00 á miðvikudagsmorgunn.
Einnig má benda það að vetraropnun hefst 2. september.
Mánudagar - föstudaga: 07:00 - 20:30
Laugardagar: 11:00 - 15:00
Sunnudagar: Lokað
Með bestu kveðju,
forstöðumaður
Kjörbúðin auglýsir eftir starfsmanni
Kjörbúðin á Djúpavogi auglýsir eftir starfsmanni.
Sjá nánar hér að neðan.
Fréttabréf Neista - sumar 2020
Ungmennafélagið Neista hefur sent frá sér rafrænt fréttabréf fyrir sumarið 2020.
Hægt er að sjá það hér að neðan og einnig með því að smella hér.

Borgarland 46-54 - óveruleg breyting á deiliskipulagi
Á fundi sveitarstjórnar Djúpavogshrepps 14. ágúst 2020 var ákveðið að láta fara fram grenndarkynningu sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á eftirfarandi tillögum:
Djúpivogur – Borgarland 46 - 54 – óveruleg breyting á deiliskipulagi
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar, m.a. uppdrátt og greinargerð með því að smella hér.
Gjöf barst safni Ríkarðs Jónssonar
Úskorinn stóll barst safni Ríkarðs Jónssonar

Tryggvabúð lokuð í dag
Tryggvabúð, félagsaðstaða eldri borgara í Djúpavogshreppi, er lokuð í dag vegna veikinda.
Lestun á baggaplasti 2020
Ágætu bændur í Djúpavogshreppi
Nú stendur fyrir dyrum eins og áður að fara á sveitabæi í Djúpavogshreppi og taka baggaplast til endurvinnslu. Það verður gert fimmtudaginn 20. ágúst og er áætlað að byrja að taka baggaplast á syðsta sveitabæ um hádegisbil og enda svo á Núpi. Ef ekki næst að taka allt baggaplastið í einni ferð verður önnur ferð skipulögð hið fyrsta og bændur þá upplýstir um það. Bændur eru hér með vinsamlega beðnir um að tryggja öruggt aðgengi að rúlluplastinu svo lestun gangi vandræðalaust fyrir sig.
Þeir bændur sem ætla að nýta sér þessa ferð eru vinsamlegast beðnir um að láta vita á skrifstofu Djúpavogshrepps í síma 470-8700 eigi síðar en miðvikudaginn 19. ágúst.
Með góðum samstarfskveðjum
Djúpavogshreppur – Terra á Austurlandi
Viðbygging við grunnskólann formlega tekin í notkun
Í dag var ný viðbygging við grunnskólann tekin formlega í notkun. Með því er tekið mikilvægt og löngu tímabært skref með það að markmiði að bæta vinnuaðstöðu nemenda og kennara.
Viðbyggingin er rúmlega 150 fermetrar og skiptist í fjölnotarými annars vegar og aðstöðu fyrir tæknimennt hinsvegar. Einnig var bætt við salernum auk þess sem nýju loftræstikerfi var komið fyrir í nýju byggingunni og hluta af eldra húsnæðinu. Af þessu tilefni var iðnaðarmönnum sem starfað hafa að verkefninu, auk formanns fræðslu- og tómstundanefndar boðið til kaffisamsætis með starfsfólki. Í máli sveitarstjóra og skólastjóra sem tóku til máls við athöfnina kom fram mikil ánægja með allt samstarf meðan á framkæmdunum stóð og var iðnaðarmönnunum þakkað sérstaklega með lófataki. Í máli sveitarstjóra kom einnig fram að nauðsynlegt væri að hefja fljótlega undirbúning að frekari viðbyggingu enda hefur nemendum skólans fjölgað mikið undanfarin ár.
Sveitarstjóri
