Aðalvefur
Nýtt þrek og styrktarnámskeið
Nýtt Þrek og styrktarnámskeið hefst þriðjudaginn 4. febrúar og er í fjórar vikur.
Tímarnir hjá okkur eru kl 6:45 á mánudögum og föstudögum og kl 19 á þriðjudögum.
Tímarnir eru þannig uppsettir að það eiga lang flestir að geta tekið þátt og hver fer á sínum hraða.
Hægt er að velja í hvaða tímum þú tekur þátt.
Gjaldskráin er þannig
1 tími í viku 2500 kr
2 tímar í viku 4000 kr
3 tímar í viku 5000 kr
Þeir sem ekki hafa mætt áður geta mætt í einn prufutíma.
Hægt er að skrá sig og frekari upplýsingar í sveinnthordur@gmail.com, á facebook eða koma til mín í íþróttamiðstöðina.
Kv.
Sveinn Þórður
Íþróttafræðingur
Vísir hf. auglýsir eftir starfsmanni
Starfsmaður óskast til starfa hjá Vísi á Djúpavogi við viðhald á vélum og tækjum. Hann þarf að vera laghentur með verkfærin og vera með jákvætt hugarfar til að læra meira á vélar og tæki.
Nánari upplýsingar gefur Ómar í síma 856-5797
Vísir hf.
Gjöf til skólans
Grunnskólanum barst höfðingleg gjöf um daginn, frá Fjölsmiðjunni í Reykjavík. Þannig er að Þorleifur, fyrrverandi "bóndi" í Hamraborg er deildarstjóri tölvudeildar Fjölsmiðjunnar. Þeir áttu 20 tölvuskjái sem þeir þurftu ekki að nota og datt Þorleifi þá í hug að mögulega væri þörf á þessum skjám hér á Djúpavogi. Hann hafði samband við Ólaf Björnsson, yfirmann tölvumála í skólanum sem þáði skjáina með þökkum fyrir hönd skólans.
Myndirnar hér að neðan tók Ólafur af glöðum krökkum í grunnskólanum þegar skjáirnir voru komnir í hús. Vil ég, fyrir hönd nemenda og starfsfólks skólans, senda Þorleifi og öðrum í Fjölsmiðjunni í Reykjavík okkar bestu þakkir fyrir þessa góðu gjöf.
Halldóra Dröfn, skólastjóri
Miðasala á Þorrablótið
MIÐASALA Á ÞORRABLÓTIÐ HEFST KLUKKAN 04:00 AÐFARANÓTT ÞRIÐJUDAGS
FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ!
KVEÐJA NEFNDIN
Samkaup-strax auglýsir
Samkaup-strax á Djúpavogi auglýsir eftir starfsfólki í sumarvinnu !
Við sækjumst eftir jákvæðum og hraustum einstakling sem sýnir frumkvæði og metnað í starfi.
Fullt starf og hlutastarf er í boði.
Áhugasamir vinsamlegast fyllið út umsókn hér: http://samkaup.is/Atvinnuumsokn/ og sendið okkur.
Samkaup-strax, Djúpavogi
Þorrablót leikskólans
Þorrablót leikskólans var haldið í dag. Byrjað var á balli þar sem tjúttað var við hin ýmsu lög, meðal annars dansaður hókí pókí, superman og fugladansinn svo eitthvað sé nefnt. Síðan var opnað á milli deilda og borðuðu öll börnin saman í salnum og inn á deildum. Fengu börnin að smakka allt sem á boðstólum var eða hefðbundinn þorramat. Börnin voru dugleg að smakka og sumt fannst þeim gott en annað ekki. Eftir átið var svo boðið upp á frostpinna sem var vel þeginn.
Börnin bjuggu sér til hatta fyrir þorrablótið
Smakka matinn
Á þorrablóti
Ís í eftirrétt
ÞS
Frá Þorrablótsnefndinni
Okkur barst dularfull orðlaus sending frá Þorrablótsnefndinni á netfangið okkar í dag.
Sendingin innihélt meðfylgjandi myndir og þær staðfesta að minnsta kosti að nefndin hefur ekki setið auðum höndum upp á síðkastið. Við látum þær bara tala sínu máli.
Þorrablót Djúpavogsbúa verður haldið laugardaginn 1. febrúar næstkomandi. Miðasala auglýst síðar.
ÓB
Skonrokk á Hammondhátíð
Hammondhátíð Djúpavogs tilkynnti óvænt í dag hvað verður í boði fyrir gesti hátíðarinnar á föstudagskvöldinu í ár, nánar tiltekið 25. apríl.
Það óhætt að segja að það verði sannkölluð flugeldasýning á Hótel Framtíð þar sem Tyrkja-Gudda ætlar að mæta og flytja mörg af bestu lögum rokksögunnar undir yfirskriftinni Skonrokk.
Söngvararnir Birgir Haraldsson, Magni Ásgeirsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Pétur Örn Guðmundsson fara fyrir þessum hópi en þá eru einnig hljóðfæraleikararnir Stefán Örn Gunnlaugsson, Birgir Nielsen, Ingimundur Níels Óskarsson, Einar Þór Jóhannsson og Sigurgeir Sigmundsson.
Búið var að gefa út áður að dagskrá Hammondhátíðar yrði tilkynnt í byrjun febrúar, en aðstandendur hátíðarinnar segjast hafa viljað gefa fólki örlítið forskot á sæluna með þessari tilkynningu.
ÓB
Félagsvist í Löngubúð
Minnum á félagsvistina í kvöld kl. 20:30
Allir velkomnir
Kvenfélagið Vaka
Jóga fellur niður
Jógatíminn, sem vera átti á morgun, miðvikudaginn 15. janúar, fellur niður.
Pála
Styrktarreikningur vegna andláts Guðnýjar Helgu Baldursdóttur
Stofnaður hefur verið styrktarreikningur vegna andláts Guðnýjar Helgu Baldursdóttur.
Þeir sem vilja láta fé af hendi rakna geta gert það með því að leggja inn á reikning
1147-05-402500 - kt. 030247-3299
ÓB
Hammondhátíð Djúpavogs tilnefnd til Eyrarrósarinnar
Hammondhátíð Djúpavogs er eitt af 10 verkefnum sem möguleika eiga á því að hljóta Eyrarrósina 2014.
Sú nýbreytni er nú tekin upp á tíu ára afmæli Eyrarrósarinnar að í stað þriggja tilnefndra verkefna, er nú birtur Eyrarrósarlistinn 2014, listi yfir tíu verkefni sem möguleika eiga á því að hljóta Eyrarrósina í ár.
Þann 2. febrúar næstkomandi verður sagt frá því hvaða þrjú hljóta viðurkenningu. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en tvö verkefni hljóta 300.000 króna viðurkenningu og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.
Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn laugardaginn 15. febrúar næstkomandi í Menningarmiðstöðinni Skaftelli á Seyðisfirði. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin að vanda.
Eyrarrósarlistinn 2014 er:
Verksmiðjan Hjalteyri
Hammondhátíð á Djúpavogi
Áhöfnin á Húna II
Skrímslasetrið á Bíldudal
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri
Tækniminjasafn Austurlands
Reitir á Siglufirði
Listasetrið Bær í Skagafirði
Kómedíuleikhúsið
Þjóðahátíð Vesturlands
Nánar má lesa um þetta á vef Listhátíðar í Reykjavík
ÓB
Íþróttamiðstöð Djúpavogs lokuð laugardag
Íþróttamiðstöð Djúpavogs verður lokuð á morgun laugardag vegna jarðarfarar.
Starfsfólk ÍÞMD
Leikskólinn opinn á morgun, laugardag
Ákveðið hefur verið að bjóða uppá pössun fyrir börn, í leikskólanum, laugardaginn 11. janúar á meðan jarðarför stendur yfir.
Húsið opnar klukkan 13:30 og sækja skal börnin klukkan 15:00, eða um leið og athöfn í kirkju lýkur.
Börnin fá ekki að borða og eiga því að koma södd í leikskólann.
Vinsamlegast látið vita í dag hvort þið munið nýta ykkur þessa þjónustu á netfangið skolastjori@djupivogur.is
Skólastjóri
Sveitarstjórn: Fundargerð 09.01.2014
Hægt er að nálgast fundargerðina með því að smella hér.
ÓB
Frá félagi eldri borgara
Fundur verður í félagi eldri borgara föstudaginn 10. janúar kl. 14:00 í félagsmiðstöð eldri borgara, Tryggvabúð, Markarlandi 2.
Nýir félagar velkomnir
Stjórnin.
Jóga byrjar aftur eftir áramót
Jóga byrjar aftur í dag, miðvikudag kl. 18:00 í Sambúð.
Kveðja Pála
Frá Löngubúð
Langabúð óskar öllum gleðilegs árs og þakkar liðnar stundir.
Athugið að félagsvistin byrjar föstudaginn 17. janúar kl. 20:30.
Starfsfólk Löngubúðar
Frá Tannlæknastofu Austurlands
Tannlæknir verður á Djúpavogi eftirfarandi föstudaga:
10. janúar
31. janúar
21. febrúar
14. mars
4. apríl
2. maí
23. maí
Tannlæknastofa Austurlands
Sveitarstjórn: Fundarboð 09.01.2014
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps: Fundarboð 09.01.2014
43. fundur 2010-2014
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Djúpavogshrepps fimmtudaginn 9. janúar kl. 16:00. Fundarstaður: Geysir.
Dagskrá:
1. Breyting á Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020
2. Fundargerðir
a) Félagsmálanefnd, dags. 16. desember 2013.
b) StarfA, dags. 3. desember 2013
c) Hafnasamband Íslands, dags. 13. desember 2013
d) Samband íslenskra sveitarfélaga, dags. 13. desember 2013
3. Erindi og bréf
a) Seyðisfjarðarkaupstaður, dags. 19. desember 2013.
b) SÍS, dags. 23. desember 2013.
c) Alþingi, dags. 6. janúar 2013.
4. Skýrsla sveitarstjóra
Djúpavogi, 7. janúar 2014
sveitarstjóri
Engir Zúmbatímar í janúar
Engir Zúmbatímar verða í janúar í íþróttamiðstöðinni.
ÍÞMD
Þrettándabrenna 2014
Þrettándabrennan verður haldin niðri í Blá, mánudaginn 6. janúar kl. 18:00.
Blysför verður farin frá Sparisjóðnum kl. 17:30.
Við hvetjum fólk til að koma með friðarkerti og kveikja á fyrir utan Sparisjóðinn.
Þrettándanefnd
Lokað vegna bænastundar
Lokað verður í Samkaup - Strax og Vínbúðinni í dag frá kl 17:40 vegna bænastundar í Djúpavogskirkju.