Aðalvefur
Tilkynning frá Hótel Framtíð
Tilkynning frá Hótel Framtíð ehf
Veitingasala okkar á Hótel Framtíð verður lokuð eftirfarandi daga:
Fimmtudaginn 13 janúar
Föstudaginn 14 janúar
Laugardaginn 15 janúar (vinsamlega athugið, barinn opnar kl. 23:30)
Sunnudaginn 16 janúar
Óskum öllum viðskiptavinum okkar til sjávar og sveita farsældar á nýju ári
Þökkum það liðna og hlökkum til ánægjulegs samstarfs á nýju ári.
Með kveðju,
starfsfólk og eigendur Hótels Framtíðar á Djúpavogi.
Smellið hér til þess að sjá auglýsinguna stóra
BR
Svar við jólagátunni
Fyrir jól settum við inn myndagátu þar sem við báðum lesendur að skýra út hverjir væru á myndinni.
Aðeins eitt svar barst og, svo fremi sem það er rétt, verður það að teljast nokkuð gott.
Það var Már Karlsson sem gat nafngreint 16 af þeim 23 sem á myndinni eru og hann telur að myndin sé tekin í kringum 1947.
Hér að neðan er hægt að skoða svarið hans Más sem við þökkum honum að sjálfsögðu fyrir.
ÓB
1. Víðir Sigurðsson, Sólvangi
2. Björn Arnórsson (Bibbi), Ekru
3. Stefán Arnórsson, Ekru
4. Árni Björn Steingrímsson (Bangsi), Vegamótum
5. Lúðvík Sigurðsson (Búlli), Sætúni
6. Jens Árni Ingimundarson (Jenni), Geysi
7. Haukur Björgvinsson, Miðhúsum
8. Halldór Jónsson (Dóri), Melum
9. Hörður Rögnvaldur Karlsson, Geysi
10. Birgir Sigurðsson (Bói), Sætúni
11. Stefán Höskuldsson (Stebbi Hö), Höskuldsstöðum
12. Már Karlsson, Geysi
13. Bragi Emilsson, Hlíðarhúsi
14. Ásbjörn Karlsson (Bjössi), Geysi
15. Baldur Sigurðsson?, Sólvangi
16. Eggert Ingimundarson, Geysi
Þrettándabrennu aflýst
Vegna slæmrar veðurspár næstu daga er Þrettándabrennu aflýst.
Þrettándabrennunefndin 2011 mun mæta tvíelfd aftur til leiks að ári, ef veður leyfir.
BR
Bókasafnið er lokað í kvöld
Vegna veðurs er bókasafnið lokað í kvöld.
Bókasafnsvörður
BR
Landaður afli í desember 2010
Hér gefur að líta desembertölur landaðs afla í Djúpavogshöfn.
ÓB
Skip/Bátur | Afli | veiðarfæri | Fjöldi róðra |
Fjölnir Su | 216.711 | Lína | 3 |
Goði | 281 | Landbeitt lína | 1 |
Gulltoppur | 51.787 | Landbeitt lína | 1 |
Jóhanna Gísladóttir | 262.226 | Lína | 3 |
Kristín GK | 65.297 | Handfæri | 1 |
Páll Jónsson | 344.061 | Dragnót | 5 |
Sigurvin SU | 447 | Lína | 1 |
Sturla GK | 102.535 | Lína | 1 |
Sænes | 1.305 | Plógur | 1 |
Tjálfi SU | 329 | Lína | 1 |
Tómas Þorvaldsson | 67.017 | Lína | 1 |
Valdimar GK | 118.337 | Lína | 2 |
Öðlingur SU | 14.543 | Landbeitt lína | 1 |
Samt | 1.244.876 |
Lax - og þorskeldi í Berufirði
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir HB Granda vegna lax- og þorskeldis í Berufirði.
Tillagan ásamt fylgigögnum liggur frammi í Geysi til 3. mars. Tillöguna má einnig nálgast á vefsíðu
Umhverfisstofnunnar sem opna má með því að smella hér
BR
Spilavist á nýju ári
Nú hefjum við nýja árið með trompi og spilum félagsvist í Löngubúð næstu þrjá föstudaga.
Föstudaginn 7. janúar kl. 20:30
Föstudaginn 14. janúar kl. 20:30
Föstudaginn 21. janúar kl. 20:30
Allir hjartanlega velkomnir
Golfklúbbur Djúpavogs
Óveður í Djúpavogshreppi
Það hefur víst ekki farið fram hjá neinum, sem lætur sig málefni Djúpavogshrepps varða, að hér hefur verið snarvitlaust veður sl. hálfa sólahringinn eða svo. Það verður þó að segjast að sjaldan verður mjög hvasst á Djúpavogi en á meðan getur veður verið snarvitlaust í fjörðunum sitthvorumegin við .
Þannig sýndi nýr veðurmælir á Sandbrekku í Hamarsfirði 69 m/s í einni hviðunni um klukkan 6 í morgun og þá fauk austurhlið hlöðunnar á Núpi við Berufjörð.
Svolítið hefur verið fjallað um óveðrið í vefmiðlum og fleiri stöðum í netheimum og ákvaðum við að taka það saman sem komið er. Hægt er að smella á tenglana hér fyrir neðan til að skoða fréttirnar.
Myndin með fréttinni er frá 2001 en þá varð salthúsið við höfnina fyrir barðinu á aftakaveðri á Djúpavogi.
ÓB
mbl.is - Kolvitlaust veður í Berufirði
mbl.is - Vindhviða mældist 69 metrar á sekúndu
Veðurvaktin - 69 m/s í Hamarsfirði
Útsala í Samkaup Strax
Útsala af fatnaði er hafin hjá Samkaup-Strax
30-50% afsláttur af völdum vörum.
Bestu kveðjur og þökk fyrir árið sem var að líða.
Samkaup-Strax
Djúpavogi
Breyttur opnunartími í Bakkabúð
Breyttur opnunartími í Bakkabúð
Í janúar - mars verður Bakkabúð opin á miðvikudögum frá kl. 16:00 - 18:00
30% afsláttur af jólakertum og serviettum (ekki frá Hekluisland)
Verið velkomin
Bakkabúð
BR