Fréttir
Hátíðardagskrá í Löngubúð
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands þann 1. des verður notaleg stund í Löngubúð.
Jólaljósatendrun 2018
Ljósin á jólatré Djúpavogshrepps verða tendruð fyrsta sunnudag í aðventu þann 2. desember kl. 17:00 á Bjargstúni.
Grunnskólanemi kveikir jólaljósin.
Sungið og dansað í kringum jólatréð.
Jólasveinar kíkja í snemmbúna heimsókn niður í mannabyggð með sitthvað í pokahorninu.
Jólatréð er gjöf frá Skógræktarfélagi Djúpavogs.
Jólablað Bóndavörðunnar 2018 komið á netið
Jólablað Bóndavörðunnar 2018 kom út þann 23. nóvember síðastliðinn.
Nú er hægt að skoða netútgáfu af blaðinu.
Smellið hér til fara á vefsvæði Bóndavörðunnar, en þar er einnig hægt að skoða eldri tölublöð.
Bókagjöf frá Lionsklúbbi Djúpavogs
Á dögunum færðu Lionsfélagar á Djúpavogi leikskólanum námsefnispakka frá Menntamálastofnun. En þessi gjafapakki fór til allra leikskóla á landinu og sáu fulltrúar Lions-hreyfingarinnar um að heimsækja leikskólana og afhenda þeim gjafapakkann.
Í pakkanum er að finna spjöld með bókstöfum, veggspjöld með bók- og tölustöfum, hreyfispil, tónlistarleiki og léttlestrarbækur. Afhending námsefnisins er liður í þjóðarsáttmála um læsi og mun það nýtast vel í öllu starfi leikskólans okkar.
Við þökkum Lions kærlega fyrir þessa heimsókn til okkar.
Foreldrafélög Djúpavogs fá barnabókahöfund á Djúpavog
Bergrún Íris rithöfundur heimsækir Djúpavog
Bera - fyrsta íslenska hot sauce sósan
"Bera er fyrsta íslenska „hot sauce” sósan. Nefnd eftir austfirskri skessu og framleidd í samnefndum firði. Hún er sterk, stór og ber að nálgast af varfærni. En ef rétt er að farið opnast gáttirnar fyrir sætu og seiðandi suðrænu bragði sem sleppir seint taki."
Svona er lýsingin á sósunni sem Djúpavogsbúinn William Óðinn Lefever hefur verið að vinna að síðastliðin ár. Og nú er komið að lokahnykknum við að koma sósunni á markað. Óðinn hefur komið á laggirnar Karolina Fund söfnun til að klára verkefnið. Á Facebook síðu Lefever Hot Sauce segir: Tæplega 600 mangóum seinna og sósan er klár! Nú þurfum við á ykkar hjálp að halda! Ykkar framlag á Karolinafund getur látið þennan draum verða að veruleika. Íslandi sárvantar hot sauce í matarflóru sína. Með ykkar framlagi getum við teygt það til frambúðar!
Óðinn hefur staðið sveittur með hjálp góðra manna í framleiðslueldhúsinu á Karlsstöðum við að malla sósuna og koma á flöskur.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að styðja við þetta flotta verkefni.

Þórshamar "hræðilegasta" húsið á Dögum myrkurs
Tilkynning á hræðilegasta húsinu á Dögum myrkurs
Sunnudagaskólinn í Djúpavogskirkju
Sunnudagaskólinn í Djúpavogskirkju kl. 13.00, sunnudaginn 25. nóvember.
Þáttur sýndur með Hafdísi og Klemma og Rebbi mætir og söngur og gaman
Allir krakkar velkomnir og pabbar og mömmur, líka afar og ömmur,
sóknarprestur
Fótboltaleikir milli starfsfólks og nemenda
Síðastliðinn föstudag kom starfsfólk Djúpavogsskóla nemendum skemmtilega á óvart með því að skora á þá í knattspyrnuleiki. Í fyrri frímínútum spilaði starfsfólkið á móti eldri nemendum, þ.e. 5.-10. bekk og lauk leik með sigri nemenda 7-0 þrátt fyrir frábær tilþrif starfsfólks og skot þeirra í slá. Seinni leikurinn var á milli starfsfólks og nemenda 1.-4. bekkjar og lauk honum með 1-1 jafntefli þar sem starfsfólkið náði að jafna á síðustu andartökum leiksins.
Þetta var mikil og góð skemmtun og tóku vel flestir nemenda og starfsfólks þátt. Þeir sem kusu að spila ekki með voru virkir á hliðarlínunni að hvetja enda eru áhorfendur nauðsynlegir á hverjum fótboltaleik.
Áfram Djúpavogsskóli !!!
Djúpavogshreppur eignast þingmann
Berglind Häsler tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn
Uppbyggingarsjóður Austurlands - Vinnustofa á morgun í Sambúð
Áhersla Uppbyggingarsjóðs Austurlands fyrir árið 2019 er matur og matarmenning.
Hunda og kattahreinsun 2018
Í dag, frá 13:00 - 14:00.
Tvennir tónleikar um helgina í Djúpavogshreppi
Tónleikar laugardag og sunnudag
Sveitarstjórn: Fundargerð 15.11.2018
5. fundur 2018 - 2022.
Blóðsykursmæling í Kjörbúðinni í dag
Blóðsykursmæling á vegum Lionsklúbbsins.
Sunnudagaskólinn í Djúpavogskirkju
Sunnudaginn 18.nóv. kl. 13.00 (ATH BREYTTAN TÍMA)
Bóndavarðan - jólaútgáfa
Síðasti skiladagur greina og auglýsinga í dag
Gautavík í Landanum
Skemmtilegt innslag um Gautavík í Landanum
Úrslit ljósmyndasamkeppni Daga myrkurs
Sigumyndin opinberuð
Jólahlaðborð Tryggvabúðar 2018
Hið árlega jólahlaðborð Tryggvabúðar.
Sveitarstjórn: Fundarboð 15.11.2018
5. fundur 2018 - 2022.
Leikjarinn í heimsókn hjá GameTíví
Birkir Fannar Smárason kíkti í heimsókn til GameTíví á dögunum.
Oddný Anna bóndi í Gautavík í hádegisfréttum RÚV
Oddný Anna íbúi í Djúpavogshreppi í viðtali
Bóndavarðan - jólaútgáfa!
Óskað eftir efni

Dagar myrkurs vel heppnaðir og frábær þátttaka!
Dögum myrkurs er nú lokið

Leikskólinn auglýsir
Leikskólakennari - leiðbeinandi
Kynning á stafrænni þjónustu Arion banka
Arion banki heimsækir Djúpavog