Forsíða

Vertu velkomin/n í töfrandi náttúru Djúpavogs

 

Með hækkandi sól verður mannlífið fjölbreyttara í litlu sjávarþorpi á Austfjörðum. Ýmsir gestir leggja leið sína í byggðarlagið, jafnt farfuglar sem ferðamenn og njóta þess besta sem náttúran býður upp á við hinn Djúpa vog og í nágrenni hans.

Ferðaþjónusta hefur vaxið mikið á síðustu árum í sveitarfélaginu  og höfum við lagt metnað okkar og kraft í svonefnt fuglaverkefni, Birds.is.  Annað stórt verkefni miðar að því að markaðssetja staðinn sem vænlegan áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Það er unnið í samstarfi Djúpavogshrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Við erum sannfærð um að sóknarfæri okkar liggja ekki síst í ferðaþjónustu og horfum bjartsýn til framtíðar í þeim efnum. Með orkuna og sköpunarkraftinn frá Búlandstindinum í farteskinu eru okkur allir vegir færir.

Við vonum að þú njótir heimsóknar þinnar í Djúpavogshrepp.

 

 

Búlandstindur, höfundur Óskar Ragnarsson